Stefna Aktu Taktu er að vera leiðandi "drive-thru" veitingastaður sem sérhæfir sig í sölu á fyrsta flokks grill-skyndibita, ís og kaffi. Til að ná þessum markmiðum höfum við einsett okkur að bjóða einungis mat af bestu mögulegu gæðum, veita hraða og góða þjónustu, halda stöðunum ávallt hreinum og bjóða vörur á hagstæðu verði. Með þetta að leiðarljósi teljum við okkur geta uppfyllt þarfir okkar viðskiptavina á sem bestan hátt og í lok dagsins er ekkert sem gleður okkur meira en ánægðir viðskiptavinir. Okkar sérhæfing: 1. GRILL 2. ÍS 3. KAFFI | Okkar áherslur: 1. Hröð og góð þjónusta 2. Hámarks gæði 3. Hreinleiki |
|